13 mars kl 13 Grænn hópur
13 mars kl 16 Gulur hópur Aukasýning
19 mars kl 13 Gulur hópur
20 mars kl 13 Grænn hópur
27 mars kl 13 Gulur hópur
27 mars kl 16 Græni hópur Aukasýning
3 apríl kl 13 Græni hópur
3 apríl kl 16 Guli hópur Aukasýning
9 apríl kl 13 Græni hópur Aukasýning
10 apríl kl 13 Gulur hópur
24 apríl kl 13 Gulur hópur
24 apríl kl 16 Grænn hópur
1. maí kl 13 Gulur hópur
1. maí kl 16 Græni hópur Aukasýning
8. maí kl 13 Græni hópur

BÍDDU BARA
Gaflaraleikhúsið er einstaklega stolt af því að kynna BÍDDU BARA – hlátursprengju fyrir glaðsinna grindarbotna sem verður frumsýnt 10. september
BÍDDU BARA! er eftir stórstjörnurnar Sölku Sól Eyfeld, Selmu Björnsdóttur og Björk Jakobsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn.
Þetta einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir, uppeldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekkert undan en ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur, hinsegin, kynsegin og allar hinar (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi maka sem þora að koma). Það má segja að þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Uppistand, leiksenur og söngur af bestu sort.