top of page

skólinn

Við vorum að stofna glænýjan Gafló(leiklistar)skóla í  Nýsköpunarsetrinu við lækinn (Gamla Lækjarskóla).
Þar munum við kenna hinar ýmsu skapandi greinar sem tengjast sviðslistum á komandi árum.
Lesa má nánar um Gaflóskólann með því að smella á flipann Gaflóskólinn.

Í Janúar frumsýnum við svo glænýa íslensk asýningu EKKI HUGMYND á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu.


Ekki hugmynd er bráðfyndið gamanleikrit þar sem mannabörnin Arnór, Óli og Vigdís eru öll týnd á tímamótum og hafa ekki hugmynd um hvað þau eiga að gera. En með gríni, mis-heimspekilegum kenningum, söng og öllum tiltækum leikhústrixum ætla þau að finna út úr þessu og færa íslensku þjóðinni svar við ráðgátum lífsins!

 

Jæja hvað ætlarðu svo að verða?
Ekki hugmynd.
Hvað skuldarðu mikið í skatt?
Ekki hugmynd.
Hvað á leikritið að heita?
Ekki hugmynd.


Það er skelfileg stund í lífi hvers mans þegar tilveran hættir

að vera hellað djamm og hótel mamma og verður virðisauki,

viðbótalífeyrissparnaður og almennur viðbjóður. 
Snögglega breytist lífið í eitt stórt skyndipróf:
Heimsreisa eða háskólapróf?
Smokkur eða snudda?
Lán eða lífsvilji?
Og hvert er svarið?

Eeeeeekki huuuuuuugmynd.
Ps. Allir miðakaupendur fá þátttökuverðlaun.

EkkiHugmynd-Plakat220x290.jpg

Höfundar og leikarar: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Vigdís Hafliðadóttir
Leikstjórn: Egill Andrason
Tónlist og hljóðmynd: Vigdís Hafliðadóttir og Andri Egilsson
Ljósahönnun: Sölvi Dýrfjörð 
Leikmynd og búningar: Bryndís Ósk Ingvarsdóttir
Aðstoðaleikstjórn: Ásgrímur Gunnarsson
Dramatúrg: Björk Jakobsdóttir
Framkvæmdastjón: Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason
Markaðssetning: Björk, Gunni, Arnór og Óli Gunnar

Framleiðendur: Gaflaraleikhúsið í samstarfi við Borgarleikhúsið
Við hlökkum til að fá ykkur í leikhúsið og hlökkum til að fá framtíðarsnilla í Gaflóskólann okkar

TH-facebook-event_edited_edited.jpg

Tóm hamingja! Þessi gleðisprengja á tveimur sviðum snýr aftur. Þetta ferska og sprenghlægilega leikhúsform heldur öllum á tánum, leikurum jafnt sem áhorfendum. Vinahópurinn ákveður að taka smá inngrips partý upp í bústað um áramótin. Þau hafa þungar áhyggjur af Hjálmari sem virðist alveg vera að missa af hamingjulestinni. Hann er óvirkur á samfélagsmiðlum og hættur að drekka sem er klárlega merki um alvarlegt þunglyndi. Því ákveður vinahópurinn að hjálpa. Þessi áramót eiga að vera tóm hamingja svo Hjálmar sjái ljósið á ný. En misskilningur, meðvirkni, ofskynjunarvöfflur, framhjáhald, kind og fleira flækja bústaðarferðina all verulega. Miðar fást hér

Jól á náttfötunum með Gunna og Felix verður á sínum stað á aðventunni.


Þetta er í fjórða sinn sem sýningin er sýnd á aðventunni og er hún orðin fastur liður á aðventunni hjá mörgum fjölskykdum enda alltaf hægt að skemmta sér og hlæja með Gunna og Felix.


Að þessu sinni sýnum við í samstarfi við Tjarnarbíó.
Miðasala á tix.is hér eða í síma 527 2100

biddu.jpg

Mögulegar aukasýningar verða á þessari hlátursýningu í vetur ef einhver var svo óheppin að
missa af sýningunni eða langar bara að rifja upp gleðina með vinkonum
Dagsetningar verða auglýstar síðar.
Það voru sýndar yfir 100 sýningar á þessari ótrúlegu  hlátursprengju fyrir glaðsinna grindarbotna
- eftir stórstjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur . 
Þetta  einlæga, beitta og drepfyndna verk sem fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um
vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir. 
Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið alfarið á sinni eigin reynslu, draga ekkert undan en
ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar
konur (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi eiginmenn sem þora að koma). Það má segja að
þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla:
svona ert þú! Uppistand, samtöl og söngur af bestu sort.

Drottningin sem kunni allt nema... er farandssýning hjá okkur og tilvalið er að panta hana alla eða atriði úr henni fyrir bæjarfélög, hátíðir, bókasöfn og skóla. Öll flottu lögin í sýningunni má nálgast á spotify og þá geta allir sungið með Bambalínu drottningu þegar hún kemur í heimsókn. Drottningin sem kunni allt nema..... er krúttleg og kjánaleg barnasýning sem er byggð á samnefndri bók eftir Gunnar Helgason og Rán Flygenring. Hún var valin barnabók ársins árið 2021 af Morgunblaðinu. Gunnar er mættur í leikhúsið til að sjá hvernig bókinni þeirra Ránar verður breytt í leikrit. En áður en hann veit af dregst hann inn í leiksýninguna og er látinn leika Snúllu, en þúsund milljón vegfarendur, hundrað börn og ástangið starfsfólk á leikskóla flækja málin. Bambalínu drottningu er nefnilega boðið að opna leikskóla þennan dag og hún verður ægilega spennt því drottningar fá svo sjaldan að leika sér. Kalli lífvörður e hræddur um að þau verði sein því Bambalína er svo lengi að ákveða í hvaða fötum hún ætli að fara ... og svo bilar hestvagninn ... og Bambalína vildi ekki fara á klóið fyrir ferðalagið. En eins og allir vita á alltaf að fara á klóið fyrir ferðalög! Drottningin sem kunni allt nema ... var frumsýnd 1. október 2023 í Bæjarbíói. Leikarar: Halla Karen Guðjónsdóttir, Ásgrímur Gunnarsson, Gunnar Helgason. Höfundar leikgerðar: Leikhópurinn og Björk Jakobsdóttir Leikstjóri: Björk Jakobsdóttir Búnningar og leikmynd: Embla Vigfúsdóttir Teikningar og grafík: Rán Flygenring Tónlist: Máni Svavarsson Lýsing: Agnar Hermannsson Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði og Hafnarfjarðarbæ

FYRRI SÝNINGAR

palkat mamma klikk.jpg
0001.jpg
Með texta.png
Screenshot 2020-01-05 at 22.39.17.png

MAMMA KLIKK!

Í SKUGGA SVEINS

FYRSTA SKIPTIÐ

STEFÁN RÍS

Bakaraofninn 1000.jpg
Hvítt plakat jpg.jpg
plakat3-01.jpg
Copy of heilihjartatyppi.jpg

BAKARAOFNINN

HVÍTT

GÓÐI DÁTINN SVEJK

HEILI HJARTA TYPPI

unnamed (1).jpg
unnamed.jpg
hjartaspaðar.jpg
0001[1].jpg

KONUBÖRN

UNGLINGURINN

HJARTASPAÐAR

ÆVINTÝRI MÚNKHÁSENS

HAFÐU SAMBAND

Borgarleikhúsið sér um miðasölu fyrir sýningar.

Sími: 568 8000

borgarleikhus.is

Opnunartími

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

Við minnum á að alltaf er hægt að kaupa miða á borgarleikhus.is

Einnig er hægt að hafa samband við Gafló skólann á gafloskolinn@gaflaraleikhusid.is

Endilega hafið samband á facebook síðu okkar

  • Facebook

©2021 by Gaflaraleikhúsið. Proudly created with Wix.com

bottom of page