top of page

FYRRI SÝNINGAR

Skoðaðu þær hér

Mamma klikk 3.jpg
DSCF4576 copy.jpg
Fyrsta Skiptið 2.jpg

MAMMA KLIKK!

Í SKUGGA SVEINS

FYRSTA SKIPTIÐ

20161014-174940 - MummiLu_.jpg
Bakaraofninnn mynd1.jpg
hvítt midi.jpg

STEFÁN RÍS

BAKARAOFNINN

HVÍTT

svejk mynd1.jpg
Copy of bectelprófiðJPG-800.jpg
konubörn 1.jpg

GÓÐI DÁTINN SVEJK

HEILI HJARTA TYPPI

KONUBÖRN

20160910-190721 - MummiLu_.jpg
hjartaspaðar.jpg
555215_450529148290752_714496669_n.jpg

UNGLINGURINN

HJARTASPAÐAR

ÆVINTÝSI MÚNKHÁSENS

palkat mamma klikk.jpg

MAMMA KLIKK!

2019

Splunkuný leikgerð af hinni vinsælu bók Gunnars Helgasonar um MÖMMU KLIKK! Varla þarf að kynnar Gunnar en hann er einn vinsælasti höfundur barnabóka á Íslandi og hafa t.a.m. kvikmynd og sjónvarpsþættir eftir bók hans Víti í Vestmanneyjum slegið í gegn. Mamma klikk! er ein mest verðlaunaða barnabók síðari ára og er næsta víst að margir bíða spenntir eftir að fá að sjá söguna lifna við á leiksviðinu. 
 
MAMMA KLIKK fjallar um hina 12 ára gömlu Stellu sem á alveg snarklikkaða mömmu sem er óperusöngkona og er endalaust að koma Stellu í vandræðalegar aðstæður. Eftir sérstaklega vandræðalega uppákomu ákveður Stella að nú sé nóg komið og setur í gang plan til að gera mömmu sína venjulega. Á ýmsu gengur og margir koma við sögu eins og bræður hennar, þeir Siggi og Palli, pabbi hennar prófessorinn, Hanni granni og auðvitað Amma snobb. 

0001.jpg

Í SKUGGA SVEINS

2018

Verkið er fyndinn, spennandi og rammíslenskur gamansöngleikur, fullur af sprelli og kostulegum persónum eftir Karl Ágúst Úlfsson. Þetta er fjörugt og nútímalegt verk alla fjölskyldunasem byggir á einu vinsælasta leikverki allra tíma, Skugga Sveini eftir Matthías Jochumsson. 
Leikstjóri Ágústa Skúladóttir 
Leikmynd/búningar Guðrún Öyahals 
Tónlist: Eyvindur Karlsson 
Leikarar: Karl Ágúst Úlfsson og Kristjana Skúladóttir 
Fékk Grímuna sem Barnasýning ársins 2018

Með texta.png

FYRSTA SKIPTIÐ

2016

Þetta er spennandi, opinská og grenjandi fyndin sýning um allt það sem það við þorum ekki að tala um. Sýningin hefur fengið alveg frábærar viðtökur, var sýnd fyrir fullu húsi í haust og var ein af sýningum ársins að mati leiklistarrýnanda Morgunblaðsins. Höfundar og leikarar eru ungmenni sem hafa skapað sér nafn í íslenskum leik og skemmtibransa  og Arnór og Óli skrifuðu t.a.m  leikritin Unglinginn og Stefán Rís sem voru sýnd við miklar vinsældir í Gaflaraleikhúsinu. 
Höfundar: Arnór Björnsson, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Inga Steinunn Henningsdóttir Mikael Emil Kaaber, Óli Gunnar Gunnarsson 
Leikarar: Arnór Björnsson, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Diljá Pétursdóttir, Mikael Emil Kaaber, Óli Gunnar Gunnarsson 
Leikstjóri: Björk Jakobsdóttir 
Leikmynd og búningar: Björk Jakobsdóttur 
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson 
Tónlist: Hallur Ingólfsson 
Valin sýning ársins í Sögum Verðlaunahátíð Barnanna 2017

Screenshot 2020-01-05 at 22.39.17.png

STEFÁN RÍS

2016

Stefán rís byggir á bókinni “Leitin að tilgangi unglingsins” eftir Arnór Björnsson, Óla Gunnar Gunnarsson og Bryndísi Björgvinsdóttur sem Forlagið gaf út um seinustu jól. Alls taka 14 leikreyndir snillingar á aldrinum 14-18 ára þátt í verkinu. Óli og Arnór leika höfunda sem hafa ákveðið að skrifa besta leikrit allra tíma. Stefán aðalsöguhetjan,sem er leikin af Gretti Valssyni, er krúttlegur, geðþekkur og aðlaðandi strákur sem er að byrja í 10 bekk og verður ástfangin í fyrsta sinn. En með ástinni koma ótrúlega erfiðir hlutir eins og að missa málið og muna ekki hvað maður heitir og að breytast í hálfvita í hvert skipti sem maður hittir gyðjuna. 
Höfundarnir vilja ólmir hjálpa og breyta atburðarrás verksins til að gera Stefán að þeim töffara sem hann þarf að verða til að ná í stelpuna. Það hefði þó kannski verið betra fyrir Stefán að eiga höfunda með aðeins meiri tilfinningagreind sem hefðu geta tekið betri ákvarðanir fyrir hann. Í lokin tekur Stefán svo eins og allar góðar hetjur málin í sínar hendur og rís upp gegn félagsþrýstingi og höfundaofríki. 
Leikstjóri: Björk Jakobsdóttir 
Leikmynd/búningar: Björk Jakobsdóttir 
Tónlist: Hallur Ingólfsson 
Var valið  leikverk ársins á Sögum-verðlaunahátíð barnanna

Bakaraofninn 1000.jpg

BAKARAOFNINN

2016

Bakaraofninn er fjölskylduleikrit sem fjallar um það þegar Gunni og Felix ákveða að opna veitingastað. „Það getur ekki farið nema illa. Frægasti matargagnrýnandi landsins er á leiðinni og þeir sitja uppi með pólskan iðnaðarmann sem er ákaflega klaufskur. Við köllum þetta barnafarsa. Við höfum ekki séð svoleiðis áður,“ segir Felix. 
 
„Okkur langaði að gera leikrit sem er skemmtilegt en með týpískum Gunna og Felix skilaboðum.“  

Höfundar: Gunni og Felix 

Leikstjórn: Björk Jakobsdóttir  

Leikmynd/búningar:  

Leikarar: Gunni og Felix, Ævar Þór Benediktsson og Elva Ósk Ólafsdóttir  

Tónlist: Máni Svavarsson  

Var tilnefnt sem Barnaverk ársins í Grímunni. 

Hvítt plakat jpg.jpg

HVÍTT

2016

Þann 17. Janúar 2016 frumsýndi Gaflaraleikhúsið leikritið Hvítt (White á frummálinu)  í Apótekinu í Hafnarborg í Hafnarfirði.  Verkið sem var frumsýnt á Edinborgarhátíðinni árið 2010  kemur frá Catherine Wheels barnaleikhúsinu í Skotlandi. Hvítt hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verið sýnt um allan heim. Það er þó núna í fyrsta skipti sýnt með kvenleikurum og í samvinnu við listasafn, en það hefur verið draumur höfundanna.  Verkið fjallar á léttan og fróðlegan hátt um undur litanna og er ætlað fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára.  
Það er skemmst frá því að segja að verkið hefur sló í gegn og hlaut einróma lof gagnrýnenda Sýningin var sýnd á alþjóðlegri leiklistarhátíð Assitej (alþjóðasamtaka leikhúsa fyrir unga áhorfendur) í apríl 2016.  
Höfundur: Andy Manley 
Leikstjóri: Gunnar Helgason 
Leikarar: Virginia Gillard og María Pálsdóttir 
Verkið er fyndinn, spennandi og rammíslenskur gamansöngleikur, fullur af sprelli og kostulegum persónum – fjörugt og nútímalegt verk sem byggir á rótgróinni hefð. 
Leikstjóri Ágústa Skúladóttir 
Leikmynd/búningar Guðrún Öyahals 
Tónlist: Eyvindur Karlsson 
Leikarar: Karl Ágúst Úlfsson og Kristjana Skúladóttir 
Fékk Grímuna sem Barnaverk ársins 2018

plakat3-01.jpg

GÓÐI DÁTINN SVEJK

2015

Verkið fjallar um tékkneska rithöfundinn Jaroslav Hasek, sem skrifaði bækurnar um Svejk, og konu hans Shuru. Við sögu kemur fjöldi af persónum úr Góða dátanum auk þess sem Svejk sjálfur er aldrei langt undan. 
Höfundur: Karl Ágúst Úlfsson 
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir 
Leikmynd/búningar : Guðrún Öyahals 
Tónlist Evindur Karlsson 
Leikarar: Karl Ágúst Úlfsson, Þórunn Lárusdóttir, Eyvindur Karlsson

Copy of heilihjartatyppi.jpg

HEILI HJARTA TYPPI

2014

Leikritið fjallar um þrjá handritshöfunda í tilvistarkreppu  
Höfundar: Auðunn Lúthersson og Ásgrímur Gunnarsson, og leika þeir báðir í verkinu ásamt Gunnari Smára Jóhannessyni. 
Leikstjóri: Björk Jakobsdóttir

unnamed (1).jpg

KONUBÖRN

2014

Verkið fjallar um vandkvæðin sem fylgja því að vera hvorki barn né fullorðin, hvorki stelpa né kona. Handritið er unnið úr sönnum atburðum og hugleiðingum hópsins á þeim tíma  
„Hvenær verður maður eiginlega fullorðinn? Er það þegar maður fermist eða þegar maður talar bara um kapítalisma og áhrif hrunsins í afmælum? Er ég góður feministi? Á ég að raka á mér lappirnar eða ekki? Af hverju er ég á lausu? Ef ég er í sambandi, er ég þá ekki sjálfstæð sterk kona? Er ég meðvirk?” Sýningin var tekin upp haustið 2015 og var sýnd alls 24 sinnum fyrir fullu húsi.  
Höfundar og leikarar: Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, Ásthildur Sigurðardóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir, Þórey Birgisdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir  
Leikstjóri/dramatúrg: Björk Jakobsdóttir.

unglingurinn-mynd.jpg

UNGLINGURINN

2013

Eftir Arnór Björnsson og Óla Gunnar Gunnarsson 
Leikstjórn Björk Jakobsdóttir 
Leikmynd/búningar Björk Jakobsdóttir 
Tónlist Hallur Ingólfsson 
Leikarar Arnór Björnsson og Óla Gunnar Gunnarsson 
Tilnefndir til sprota ársins

hjartaspaðar plagat.jpg

HJARTASPAÐAR

 2013 í  samvinnu við Skýjasmiðjuna

Er ævintýrum ævi þinnar lokið í ellinni eða gætu þau mögulega verið rétt að byrja? 

Grímur og Hannes hafa verið félagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og dagleg rútína þeirra er fyrir löngu komin í fastar skorður. Þegar Gréta flytur inn umturnast líf þeirra og fyrr en varir hefjast óborganleg uppátæki til að lífga upp á tilveruna og drepa leiðindin. Öllum brögðum er beitt, löglegum sem ólöglegum. 

Drephlægileg uppátæki gamalmennanna á dvalarheimilinu Grafarbakka sanna að lífið er ekki búið eftir áttrætt. 

Hjartaspaðar er ákaflega sjónræn sýning þar sem grímuleikur og hreyfingar miðla sögunni en ekki töluð orð. Þetta er draumkenndur óður til elliáranna, fullur af töfrum og ólíkindahætti sem allir geta notið, óháð tungumáli, heyrnartækjum og göngugrindum. 


Höfundar: Aldís Davíðsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson is with Orri Huginn Ágústsson  

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir 

Leikmynd/búningar/grímur: Aldís Davíðsdóttir 

Tónlist: Eggert Hilmarsson 

Leikarar: Aldís Davíðsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson is with Orri Huginn Ágústsson 


Grímutilnefning fyrir búninga og sprota ársins 

0001[1].jpg

ÆVINTÝRI MÚNKHÁSENS

2012

Alveg lygilega skemmtileg fjölskyldusýning fyrir alla frá 5 ára aldri um hin ótrúlega lygalaup Múnkhásen, sem átti m. a. að hafa setið á fljúgandi fallbyssukúlum, ferðast til tunglsins upp baunagras og bjargast úr díki með því að draga sjálfan sig upp úr á hárinu.Þetta er lygileg sýning fyrir alla aldurshópa, full af ólíkindum, glensi og töfrum leikhússins. 
Leikstjórn Ágústa Skúladóttir,  
Leikmynd og Búningar: Guðrún Öyahals 
Tónlist: Ármann Guðmundsson, Eggert Hilmarsson og Þorgeir Tryggvason meðlimir í Ljótu hálfvitunum 
Leikarar: Gunnar Helgason, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Virginia Gillard 
Fékk tvær tilnefningar til Grímuverðlauna fyrir tónlist og leikmynd

Mamma Klikk
Í Skugga Sveins
Stefán Rís
Unglingurinn
Hjartaspaðar
Góði Dátinn
Munkhásen
Konubörn
Hvítt
Bakaraofninn
Fyrsta Skiptið
Heili hjarta typpi
bottom of page