top of page

Opið er fyrir síma 565-5900 í miðasölu 
mánudaga til miðvikudaga frá 10-15
Miðasala í Vikingastræti er opin frá 14-18 
fimmtudaga og föstudaga og tveimur tímum fyrir sýningar.
Einnig er svarað í síma
Ekki er svarað í síma utan opnunar- og símatíma

Ef þú hefur fyrirspurn varðandi miðasölu
Vinsamlegast sendið tölvupóst á
 
 

Næstu sýningar

Bíddu Bara

Föstudagur 24. mars Uppselt

Föstudagur 30. mars Allra síðasta sýning

             Allar sýningar hefjast kl 20.00             

Miðar fást á tix hér

Sýningin tekur tvo tíma með hléi. 

Guðrúnarkviða

Föstudagur 31. mars

Laugardagur 1. apríl

Sunnudagur 2. apríl

                 Sýningar hefjast kl 20.00             

Miðar fást á tix hér

 

_DSF5686 copy.jpg

BÍDDU BARA

Gaflaraleikhúsið er einstaklega stolt af því að kynna BÍDDU BARA – hlátursprengju fyrir glaðsinna grindarbotna sem verður frumsýnt 10. september  

 

BÍDDU BARA! er eftir stórstjörnurnar Sölku Sól Eyfeld, Selmu Björnsdóttur og Björk Jakobsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn.  

 

Þetta  einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir, uppeldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekkert undan en ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur, hinsegin, kynsegin og allar hinar (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi maka sem þora að koma). Það má segja að þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Uppistand, leiksenur og söngur af bestu sort. 

bottom of page