Gaflaraleikhúsið er þekkt fyrir stórskemmtilegar sýningar unnar lóðbeint upp úr íslenskum veruleika sem allir frá fermingu og fram á grafarbakkann geta haft gaman af.
Hvað er um að vera? - Leikhúsveturinn 2025-2026

skólinn
Gaflóskólinn snýr aftur í vetur í Nýsköpunarsetrinu við lækinn (Gamla Lækjarskóla).
Þar munum við kenna hinar ýmsu skapandi greinar sem tengjast sviðslistum á komandi árum.
Lesa má nánar um Gaflóskólann með því að smella á flipann HÉR

Bíddu bara – ÞETTA REDDAST.
Frumsýning 8. október í Bæjarbíói.
Björk Jakobs, Salka Sól og Selma Björns snúa aftur með glænýja sýningu:
Bíddu bara – ÞETTA REDDAST.
Bíddu bara var feykivinsæl sýning á sínum tíma en nú hefur bara svo margt gerst að það er löngu kominn tími á nýtt trúnó og annað hláturskast sem við öll getum haft gaman af.
Salka er komin með tvö börn og hefur ekki sofið út í sex ár!
Selma er komin á breytingarskeiðið (Guð hjálpi okkur öllum).
Björk er orðin amma og þarf nú að hlusta á börnin segja sér hvernig á að ala upp börn.
Ef þú vilt sjá eitthvað annað en fullkomna Instagram-pósta þá er þetta sýning fyrir þig.
Við látum allt flakka og langflest er dagsatt.
Sýningin er sketsa og uppistandssýning með frumsömdum lögum í anda „Bíddu bara“.
Þetta höfðu gagnrýnendur að segja um síðustu sýningu.
„Glæsilegur gleðifarsi sem enginn sem nýtur þessa að hlæja ætti að láta hjá sér fara.“
Morgunblaðið
„Sýningin á alveg 5 1/2 stig skilin af 5 mögulegum.“
Fjarðarpósturinn
„Það er bara eins gott, kæri lesandi, að þú fáir þér miða á þessa stórskemmtilegu sýningu, þú bara VERÐUR.”
Lestraklefinn
Og þar hafið þið það! Þið bara VERÐIÐ að koma!
Hlökkum til að hlæja með ykkur
ATH! takmarkaður sýningarfjöldi!
(Sóli Hólm tekur Bæjarbíó yfir um miðjan nóvember.)
Nánari upplýsingar á Stubb.is og Baejarbio.is
Ekki Hugmynd
Í vetur snýr svo vinsæla sýningin EKKI HUGMYND aftur á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu, Örfáar aukasýningar í boði!
Ekki hugmynd er bráðfyndið gamanleikrit þar sem mannabörnin Arnór, Óli og Vigdís eru öll týnd á tímamótum og hafa ekki hugmynd um hvað þau eiga að gera. En með gríni, mis-heimspekilegum kenningum, söng og öllum tiltækum leikhústrixum ætla þau að finna út úr þessu og færa íslensku þjóðinni svar við ráðgátum lífsins!
Jæja hvað ætlarðu svo að verða?
Ekki hugmynd.
Hvað skuldarðu mikið í skatt?
Ekki hugmynd.
Hvað á leikritið að heita?
Ekki hugmynd.
Það er skelfileg stund í lífi hvers mans þegar tilveran hættir
að vera hellað djamm og hótel mamma og verður virðisauki,
viðbótalífeyrissparnaður og almennur viðbjóður.
Snögglega breytist lífið í eitt stórt skyndipróf:
Heimsreisa eða háskólapróf?
Smokkur eða snudda?
Lán eða lífsvilji?
Og hvert er svarið?
Eeeeeekki huuuuuuugmynd.
Ps. Allir miðakaupendur fá þátttökuverðlaun.
Höfundar og leikarar: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Vigdís Hafliðadóttir
Leikstjórn: Egill Andrason
Tónlist og hljóðmynd: Vigdís Hafliðadóttir og Andri Egilsson
Ljósahönnun: Sölvi Dýrfjörð
Leikmynd og búningar: Bryndís Ósk Ingvarsdóttir
Aðstoðaleikstjórn: Ásgrímur Gunnarsson
Dramatúrg: Björk Jakobsdóttir
Framkvæmdastjón: Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason
Markaðssetning: Björk, Gunni, Arnór og Óli Gunnar
Framleiðendur: Gaflaraleikhúsið í samstarfi við Borgarleikhúsið
Við hlökkum til að fá ykkur í leikhúsið og hlökkum til að fá framtíðarsnilla í Gaflóskólann okkar

