Námskeið
Við bjóðum upp á þessi námskeið!

Leiklist 10-12 ára
Námskeið fyrir 7-9 ára, byrjendur jafnt sem lengra komna!

Námskeið fyrir 10-12 ára, byrjendur jafnt sem lengra komna!

Námið miðar að því að þroska og efla ungmenni til sjálfstæðrar listsköpunar og undirbúa þá fyrir framhaldsnám í sviðslistum.
LEIKLISTAR OG SPUNANÁMSKEIÐ FYRIR 7–9 ÁRA
3 hópar, mán, þri, mið kl.15:30-17:00
Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust, hugrekki í framkomu, skapandi hugsun og frumkvæði hjá nemendum.
Unnið verður með spunaæfingar og leiki sem virkja sköpunarflæðið.
Nemendur læra að nota spuna í sögugerð í og samvinnu og setja upp örleikrit sem þau semja sjálf undir handleiðslu kennara.
Einnig verður farið í aðra grunnþætti leiklistarinnar eins og rödd, líkamsbeitingu, samleik og senuvinnu.
Í lokin verður opinn kennslustund þar sem foreldrar og systkini fá að koma og horfa á okkur vinna og fá kannski að sjá nokkur örverk og senur sem nemendur hafa verið að skemmta sér við að gera.
Á þessu grunnnámskeiði er ALLS ekki lögð áhersla að fullkomna niðurstöðu eða þaulæft leikriti.
Þvert á móti þá lærum við að sleppa fullkomnunaráráttunni, fíflast og dæla út hugmyndum.
Þetta námskeið er um ferðalagið en ekki frumsýninguna.
Það kemur síðar í náminu
-
Hér eru allir velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir.
-
Önnin er 8 vikur: 12.okt - 4.des
-
Á þessum 8 vikum verða 10 tímar (1,5klst í senn) +Einn aukatími undir lok annar og ein leikhúsferð, sem verður einhverntíman yfir önnina.
-
Kennsla fer fer fram í húsnæði Gaflóskólans á 3. hæð í Menntasetrinu við lækinn (gamla Lækjarskóla).
-
Lokatími verður opið hús og spuni og senuvinna.
-
7-9 ára mán: Aukaæfing 27.nóvember kl.15:30-17:00
-
7-9 ára þri: Aukaæfing 28.nóvember kl.14-15:30
-
7-9 ára mið: Aukaæfing 29.nóvember kl.14-15:30
Nánari upplýsingar og skráning er að finna á abler
Hægt verður að nota frístundastyrk frá bænum á námskeiðum
Einnig er hægt að hafa samband við gafloskolinn@gaflaraleikhusid.is eða í síma síma 824-0889 (milli 13-17 virka daga)
LEIKLISTAR OG SPUNANÁMSKEIÐ FYRIR 10– 12 ÁRA
3 hópar, mán, þri, mið kl.15:30-17:00
Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust, hugrekki í framkomu, skapandi hugsun og frumkvæði hjá nemendum.
Unnið verður með spunaæfingar og leiki sem virkja sköpunarflæðið.
Nemendur læra að nota spuna í sögugerð í og samvinnu og setja upp örleikrit sem þau semja sjálf undir handleiðslu kennara.
Einnig verður farið í aðra grunnþætti leiklistarinnar eins og rödd, líkamsbeitingu, samleik og senuvinnu.
Í lokin verður opinn kennslustund þar sem foreldrar og systkini fá að koma og horfa á okkur vinna og fá kannski að sjá nokkur örverk og senur sem nemendur hafa verið að skemmta sér við að gera.
Á þessu grunnnámskeiði er ALLS ekki lögð áhersla að fullkomna niðurstöðu eða þaulæft leikriti.
Þvert á móti þá lærum við að sleppa fullkomnunaráráttunni, fíflast og dæla út hugmyndum.
Þetta námskeið er um ferðalagið en ekki frumsýninguna.
Það kemur síðar í náminu
-
Hér eru allir velkomnir, byrjendur jafnt sem lengra komnir.
-
Önnin er 8 vikur: 12.okt - 4.des
-
Á þessum 8 vikum verða 10 tímar (1,5klst í senn) +Einn aukatími undir lok annar og ein leikhúsferð, sem verður einhverntíman yfir önnina.
-
Kennsla fer fer fram í húsnæði Gaflóskólans á 3. hæð í Menntasetrinu við lækinn (gamla Lækjarskóla).
-
Lokatími verður opið hús og spuni og senuvinna.
-
10-12 ára mán: Aukaæfing 27.nóvember kl.17:00-18:30
-
10-12 ára þri: Aukaæfing 28.nóvember kl.15:30-17:00
-
10-12 ára mið: Aukaæfing 29.nóvember kl.15:30-17:00
Nánari upplýsingar og skráning er að finna á abler
Hægt verður að nota frístundastyrk frá bænum á námskeiðum
Einnig er hægt að hafa samband við gafloskolinn@gaflaraleikhusid.is eða í síma síma 824-0889 (milli 13-17 virka daga)
Spuni og senuvinna fyrir unlinga 13-16 ára
Mánudaga kl.19:00-21:00
Kennarar eru:
Björk Jakobsdóttir
Arnór Björnssson
Óli Gunnar Gunnarsson
Ásgrímur Gunnarsson
Námið miðar að því að þroska og efla ungmenni til sjálfstæðrar listsköpunar og undirbúa þá fyrir framhaldsnám í sviðslistum. Eins er skólinn umhverfi þar sem listræn ungmenni kynnast og mynda vinasambönd til framtíðar.
Unnið verður með:
Spuna, mónalóga, senur, raddbeitingu og sviðshreyfingar. Kennsla verður sniðin persónulega að þörfum hvers og eins til að styrkleikar nemenda fái notið sín.
Önnin er 8 vikur: 12.okt - 4.des
Á þessum 8 vikum verða 10 tímar (1,5klst í senn) +Einn aukatími undir lok annar og ein leikhúsferð, sem verður einhverntíman yfir önnina.
Leiklistarnámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Unnið verður í senuvinnu sem verður sérsniðin að reynslu og getustigi hvers leikara fyrir sig. Áhersla verður lögð á leiktækni, hlustun og að HAFA GAMAN!
Í lokatímanum (30.nóv) verður opinn tími þar sem senurnar verða sýndar fyrir fjölskyldu og vini. Þar sem áhersla verður lögð á SENUR en ekki SÝNINGU gefst hverjum nemanda meira tækifæri á að læra meira um mismunandi leikaðferðir og leikaratækni.
Nánari upplýsingar og skráning er að finna á abler
Einnig veitir Björk nánari upplýsingar í síma 824-0889
Eða í emaili : gafloskolinn@gaflaraleikhusid.is
Listhópur yngri
Fim kl.15:30-17:00
Listhópar eru hugsaðir fyrir nemendur sem hafa orðið töluverða reynslu í leiklist og þroska og fókus til að æfa lengri leikrit.
Kennarar meta hvort nemendur séu tilbúnir að fara í listhóp.
Önnin er 8 vikur: 12.okt - 4.des Á þessum 8 vikum verða 10 tímar (1,5klst í senn) +Einn aukatími undir lok annar og ein leikhúsferð, sem verður einhverntíman yfir önnina.
Námskröfur fyrir listhóp:
-
Þeir sem hafa lokið almennu námskeiði hjá Gaflóskólanum áður og kennarar telja tilbúna í enn stærri leiklistaráskoranir.
-
Þau sem hafa reynslu frá öðrum leiklistarskólum og óska eftir að fá að senda inn prufu fyrir listhóp geta haft samband við skólastjórnina.
Æfð verða atriði sem verða flutt opinberlega í jólamánuðinum, meir um það síðar.
Nánari upplýsingar og skráning er að finna á abler
Kennarar:
Arnór Björnsson
Björk jakobsdóttir
Ásgrímur Gunnarsson
Óli Gunnar Gunnarson
Listhópur eldri
Fim kl.17:00-18:30

Inntökuprófanámskeið
Fjórir sunnudagar 13:00-17:00
11.okt - 1.nóv
Á inntökuprófanámskeið verður löggð áhersla á grunnstoðir inntökuferla. Fullkomið fyrir þau sem eru að hugsa sér að fara í prufur í leiklistarskóla eða víðar.
Þetta getur verið stressandi tími fyrir leikara. Hvar finn ég mónólóga? Hvar á ég að sækja um? Hvernig á ég að fara með mónólóginn minn?
Gaflóskólinn býður upp á námskeið sérsniðið að því að svara þessum spurningum og hjálpa ungum leikurum í inntökuprufum.
Farið verður í:
-
Mónólóga, einn bundinn og einn óbundinn að eigin vali.
-
Hreyfispuna í hóp
-
Grunn í senuvinnu
-
Rafrænar prufur